Vorúthlutun 2025

 

Vísinda- og þróunarstyrkir

Vorúthlutun 2025

Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) úthlutar styrkjum til vísinda- og þróunarverkefna á sviði heilsugæslu tvisvar á ári. Lögð er áhersla á að styrkja rannsóknir í heimilislækningum, um heimilislækningar og á forsendum heimilislækninganna sjálfra.

Sjóðurinn veitir einnig sérstaka starfsstyrki til slíkrar vinnu.

Umsóknir um vorúthlutun fyrir styrkárið 2025 þurfa að berast sjóðnum fyrir 21. apríl næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.
Umsóknum ber að skila rafrænt til sjóðsins á netfangið mot@hi.is , ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að ræða.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað

  


Til baka