„Elsku Hjálmar minn, ég veit að þér líður vel í eilífðarlandinu. Á þínum björtustu stundum sendir þú mér vafurloga í hjarta. Hann stappar í mig stálinu og hvetur mig til góðra verka. Ég þakka þér fyrir þau sextán stórkostlegu ár sem við áttum saman. Fyrir þau verð ég ævinlega þakklátur.“ Þannig hefst viðtal Guðrúnar Hálfdánardóttur við Björn Hjálmarsson lækni á hinst kveðju hans til sonar síns en í dag eru 35 ár síðan Hjálmar Björnsson fæddist.
Björn Hjálmarsson læknir sagði frá reynslu sinni af því að missa son sinn á Læknadögum. Erindið var þann 19. Janúar í Kaldalóni og kallaðist það Sköpunargleði og listfengi í sorgarúrvinnslu eftir barnsmissi og enn geta þeir sem skráðir voru á Læknadaga horft á fyrirlesturinn.
Guðrún skrifar: Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL), hefur gengið í gegnum dimma dali í sorg sinni og sorgin komið fram sem reiði og aðrar erfiðar tilfinningar, ekki bara fyrir Björn heldur alla þá sem standa honum nærri.
Mynd/Skjáskot/mbl.is
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga