Emil Lárus Sigurðsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar á landsvísu og hefur störf 1. September.
Nýstofnsett Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar leiðir faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu. Þróunarmiðstöð vinnur að samræmingu verklags og samhæfingar milli fagfólks á heilsugæslustöðvum, gæðaþróun og framförum í heilsugæslu í samráði við heilbrigðisstofnanir sem reka heilsugæslustöðvar og sjálftætt starfandi heilsugæslustöðvar.
Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar starfar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er staðsett í Álfabakka 16 í Mjódd.
Emil er sérfræðingur í heimilislækningum og lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Gautaborg árið 1996.
Hann hefur starfað við Heilsugæsluna Sólvangi frá árinu 1994, þar af sem yfirlæknir 1998-2015. Frá árinu 2015 hefur hann einnig verið yfirlæknir á Þróunarstofu.
Emil er prófessor í heimilislækningum við Háskóla íslands. Hann hefur einnig tekið virkan þátt í félagsstörfum á sviði heimilislækninga hérlendis, á Norðurlöndum og í Evrópu.
Við bjóðum Emil velkominn til áframhaldandi starfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Sjá frétt á vef heilsugæslunnar
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga