Læknafélag Íslands (LÍ) fagnar því að stjórnvöld virðist ætla að leggja aukna áherslu á samráð og samtal við helstu hagaðila um viðbrögð og áherslur til viðhalds og eflingar heilbrigðiskerfisins. Félagið vill að þessu tilefni koma eftirfarandi á framfæri í kjölfar fundar ráðherranefndar um samræmingu mála vegna Covid með fulltrúum nokkurra heilbrigðisstétta (hjúkrunarfræðinga, lækna og sjúkraliða), sem haldinn var 6. ágúst 2021. Horft er til stöðunnar í dag og til framtíðar.
LÍ tekur undir þær áhyggjur sem fram hafa komið um hættuna sem fylgt getur núverandi vexti í covid smittölum og fram kom í máli staðgengils sóttvarnarlæknis og forstjóra Landspítalans í beinni útsendingu frá fundi Almannavarna þann 5. ágúst 2021.
Fyrir liggur að auk viðbragða við núverandi stöðu og getu heilbrigðiskerfisins er nauðsynlegt að skipuleggja læknis- og heilbrigðisþjónustu til framtíðar. Í fyrirrúmi verða að vera sóttvarnaráðstafanir og önnur heilbrigðisþjónusta sem tryggir að ekki verði töf á sjúkdómsgreiningum og meðferð annarra heilbrigðisvandamála auk meðferðarúrræða við hááhættu smitsjúkdómum. Þetta er ekki auðleyst verkefni en verður að ráðast í. Meðal verkefna og áhersluatriða að mati Lí eru:
- Marka þarf stefnu heilbrigðiskerfisins til skemmri og lengri tíma með ólíkum og sveigjanlegum sviðsmyndum þar sem allir hlutar heilbrigðiskerfsins taka þátt.
- Öryggi sjúklinga og starfsmanna sé tryggt öllum stundum við síbreytilegar aðstæður. Fyrir liggi mótvægisaðgerðir á álagsstundum sem tryggi sveigjanleika í starfi, svigrúm til hvíldar og réttláta umbun þeirra sem sinna áhættusömum störfum og annarra á álagstímum.
- Taka þarf mannaflaþörf heilbrigðiskerfisins til endurskoðunar, meta ábyrgð og vinnuþyngd starfseininga sem grundvöll að nýrri mannauðsstefnu.
- Hafa skýrar viðbragðsáætlanir fyrir ólíkar svipmyndir byggðar á vísindalegri þekkingu og reynslu, sem taka tillit til þess að líffræðilega breytileika sem einkennir smitsjúkdómafaraldra.
- Leggja mat á álags- og áfallaþol heilbrigðiskerfisins og benda á leiðir til úrbóta. Horfa verður til læknisþjónustu og heilbrigðismála á landsvísu.
- Tryggja starfsemi hefðbundinnar læknisþjónustu og koma í veg fyrir töf á sjúkdómsgreiningum og aðgengi að meðferðarúrræðum.
- Enduskoða verkaskiptingu innan heilbrigðiskerfisins þannig að allir þættir geti starfað og veitt þjónustu. Hyggja að flutningi meðferðarúrræða á milli þjónustuaðila til að tryggja samfellu og aðgengi m.a. með samningum við sjálfstætt starfandi lækna og þjónustuveitendur.
- Endurskoða innra skipulag, verkefni og þjónustu Landspítala.
- Styrkja samvinnu opinberrar og einkarekinnar þjónustu með mögulegri tilfærslu verkefna og sveigjanleika í samvinnu. Veita þjónustu á réttum stöðum og forðast sóun út frá faglegum og hagkvæmnissjónarmiðum.
- Uppbygging farsóttarstofnunar og kanna möguleika á sérhæfðum meðferðarúrræðum utan Landspítala.
Hér má nálgast minnisblað formanns LÍ sem sent var ráðherranefnd