"Blikur eru á lofti varðandi framhald sérfræðilæknisþjónustu eftir næstu áramót. Starfsemi sérfræðinga utan sjúkrahúsa byggist á jöfnu aðgengi landsmanna að sérfræðiþjónustu með greiðsluþátttöku sjúklings og ríkisins skv. samningi við SÍ. Þessi samningur SÍ og sérfræðinga á stofum rennur þá út að öllu óbreyttu. Berast nú þær fregnir úr velferðarráðuneytinu að kollvarpa eigi því kerfi sem hefur gefist vel undanfarna áratugi. Hefur þetta niðurrif þegar hafist og hefur um tveimur tugum nýrra sérfræðinga verið neitað um samning. Það virðist greinilega búið að undirbúa meiri háttar kerfisbreytingar án samráðs við þá aðila sem hafa veitt þessa þjónustu undanfarna áratugi” segja þeir Ragnar Jónsson og Ágúst Kárason í grein í Morgunblaðinu 25. ágúst sl.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga