Læknar af lyflækningasviði, ásamt mörgum fleirum, söfnuðu jólagjöfum Landspítalans saman og færðu mæðrastyrksnefnd í gær. Fréttablaðið greinir frá.
Landspítalinn gaf sex þúsund starfsmönnum sínum sjö þúsund króna inneign í skóbúðina Skechers í Kringlunni og Smáralind.
Ragnar Freyr Ingvarsson, umsjónarlæknir Covid-göngudeildar Landspítala, greindi frá söfnuninni á Facebook-síðu sinni. Hann segir þar að samtals hafi farið yfir 80 inneignanótur til mæðrastyrksnefndar. Fram kemur þar að fjöldi lækna og heilbrigðisstarfsfólks hafi gefið nótuna áfram. Kvennadeildin hafi til að mynda gefið til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að nokkrir starfsmenn á móttökugeðdeildinni á Landspítalanum hafi ákveðið að gefa inneignina sína til Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk.
Mynd/skjáskot/Facebook
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga