„Hann snýr alls konar hlutum á hvolf, þessi ágæti maður,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í Silfrinu í gær, sunnudag. Hann var í viðtali hjá Fanneyju Birnu Jónsdóttur fréttamanni ásamt Jóni Ívari Einarssyni, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla. Jón fór yfir skoðanir sínar á sóttvörnunum og dánartíðni vegna COVID-19. Kári sínar.
Kári hefur stigið fram og gagnrýnt hugmyndir Jóns og kallað hann Garðar Hólm. Þeir Jón og Kári hafa ólíkar skoðanir um leiðir við sóttvarnir í greinum í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu.
Hér má sjá lesa viðtal við Jón Ívar í helgarblaði Fréttablaðsins.
Hér má lesa frétt DV um Silfrið og deilur þeirra.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga