Formaður Læknafélags Íslands og framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka lyfjaframleiðenda á Íslandi, skrifuðu undir (nýjan) samning um samskipti lækna og fyrirtækja sem framleiða og flytja inn lyf við setningu Læknadaga 2020 í Hörpu í gær.
Samkvæmt tilkynningu byggja siðareglurnar á nýuppfærðum reglum Evrópusamtaka frumlyfjaframleiðenda. Þar segir jafnframt að samskipti lækna og lyfjafyrirtækja séu mikilvægur þáttur í betri lyfjameðferð við sjúkdómum og fræðslu lækna um meðferð lyfja.
„Um leið og samskipti heilbrigðisstarfsfólks og lyfjafyrirtækja eru mjög mikilvæg eru þau um leið vandmeðfarin. Þess vegna er mikilvægt að til grundvallar samskiptunum liggi skýrar siðareglur. Í þessum efnum hafa lyfjaframleiðendur verið í forystu og gengið hvað lengst í setningu slíkra reglna, og í raun til fyrirmyndar fyrir aðrar atvinnugreinar,“ segir Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga