"Stjórnvöld þurfa í ríkari mæli að hafa samráð við lækna þegar áherslur í heilbrigðismálum er mótaðar" segir Steinunn Þórðardóttir, nýr formaður Læknafélags Íslands, í samtali við Morgunblaðið.
Hún minnir á að sl. sumar hafi 1.000 læknar sett fram áskorun um úrbætur á kerfi sem væri að fara á hliðina. Segja mætti nú að slíkt hrun hefði raungerst á Landspítalanum í Covid-ástandi, þegar nýting gjörgæslurýma væri nær 100% og álag á lækna slíkt að margir þeirra íhuga nú að róa á ný mið í starfi.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga