„Okkur er ekki að takast að vinda ofan af ástandinu,“ sagði Theódór Skúli Sigurðsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir og upphafsmaður undirskriftarsöfnunar á vefsíðu Íslenskra lækna, í viðtali við Bítið á Bylgjunni nú í morgun. Staðan hafi líklega ekki verið verri. Biðlistar aldrei lengri.
Á morgun hyggst hann afhenda fulltrúum heilbrigðisráðherra undirskriftalista nærri 1.000 lækna sem hvetja til þess að staðan á Landspítala og í heilbrigðiskerfinu öllu verði verulega bætt.
Mynd/Skjáskot/Vísir
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga