Ekki dregur úr mótefni í blóði fólks sem smitast af COVID-19 fyrstu fjórum mánuðum eftir sýkingu. Það er niðurstaða vísindagreinar starfsmanna Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra sem birtist í The New England Journal of Medicine í gær 1. september.
Kári Stefánsson og Daníel Guðbjörnsson, stærðfræðingur og fyrsti höfundur greinarinnar, ræddu niðurstöðuna á Morgunvakt Rásar 1 í morgun. Hlusta má á viðtalið hér, klukkustund inn í þáttinn. Lesa má fréttatilkynningu Íslenskrar erfðagreiningar hér og vísindagreinina sjálfa hér.
Kári skrifar einnig opið bréf til Harðar Ægissonar, ritstjóra Markaðarins, í Fréttablaðinu, sem svar við leiðara hans þann 28. ágúst 2020. Lesa má bréfið hér.
Mynd/Skjáskot/Íslensk erfðagreining
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga