Sóltún Öldrunarþjónusta hefur boðið heilbrigðisráðuneytinu að reka Oddsson hótel sem tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða. Þetta kemur fram á heimasíðu þjónustunnar.
Þar er sagt að félagið myndi taka á móti einstaklingum sem hægt er að útskrifa af Landspítalanum en komast ekki þaðan vegna skorts á úrræðum.
„Með því myndi léttast verulega það álag sem nú er á Landspítalanum, en Oddsson gæti tekið við allt að 77 einstaklingum í einstaklingsherbergi. Sóltún Öldrunarþjónusta svarar þannig nýlegu ákalli heilbrigðisráðuneytisins, sem sendi fyrir skömmu erindi á hjúkrunarheimili og óskaði eftir að þau leituðu leiða til að fjölga hjúkrunarrýmum,“ segir Anna Birna Jensdóttir, stjórnarformaður Sóltúns öldrunarþjónustu, í frétt félagsins.
„Félagið býðst til að reka aðstöðuna í Oddsson á meðan samfélagið vinnur úr því erfiða ástandi sem skapast hefur vegna COVID-19. Fyrstu rýmin gætu verið tilbúin í nóvember,“ ritar Anna Birna.
Oddsson hótel er í nýuppgerðu húsnæði við Grensásveg og segir félagið að ekki þurfi að ráðast í miklar breytingar á sameiginlegu rými eða herbergisaðstöðu til að hægt sé að reka þar þjónustu fyrir aldraða.
„COVID-19 hefur gert það að verkum að lítil eftirspurn er eftir hótelrýmum sem stendur og því hefur myndast þetta tækifæri til að nýta hótelið til að leysa bráðavanda Landspítalans.“
Mynd/Skjáskot/Oddsson
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga