Samningurinn rennur út um áramótin en ákvæði er í honum sem gerir kleift að framlengja hann um mánuð í senn. Þórarinn segir að það ákvæði hafi verið sett í samninginn til að tryggja áframhaldandi starfsemi á meðan verið sé að semja og þegar einhverjar vikur vanti upp á að náist saman. Ekki sé hægt að reka læknisþjónustu mánuði í senn.
„Svoleiðis skammtímasamningar eru bara ekki góðir, hvorki fyrir sjúklingana eða okkur. Við getum þá ekki gefið sjúklingunum tíma fram í tímann. Við erum mörg bókuð hálft ár fram í tímann. Og þar af leiðandi er mjög óhentugt að hafa skammtímasamninga. Þannig að það sem við tilkynntum Sjúkratryggingum Íslands um fyrir 1. október er að 333 læknar, næstum því allir læknar sem eru á þessum samningi, að við myndum ekki vinna á útrunnum samningi" segir Þórarinn í viðtali við RÚV.
Hægt er að hlusta á viðtal RÚV við Þórarinn HÉR
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga