„Við erum skilvirk, fókuseruð og með skýra sýn á hvaða árangri við ætlum að ná í þessum faraldri,“ segir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra. Hann ásamt Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalæknir og Ölmu D. Möller, landlæknir settust niður með blaðamanni Læknablaðsins. Afraksturinn má lesa í nýútkomnu eintaki þess og hér.
Ekki klikka á að renna í gegnum eftirtektarverðan pistil Huldu Einarsdóttur, sérfræðings í ristil- og endaþarmsskurðlækningum við læknadeild Yale New Haven Connecticut, Samsek í þögn. Einnig má lesa skemmtilegt viðtal við Evu Katrínu Sigurðardóttur sem klárar nú læknisfræðimenntun sína í Danmörku og öll sjúkratilfellin.
Hlusta má á hlaðvörp blaðsins hér.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga