Félag um innkirtlafræði hefur sett inn upplýsingar til sjúklinga á heimasvæði félagsins . Annars vegar eru þarna ýmsar upplýsingar fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk sem verða fastar inni og hins vegar sérstakar upplýsingar vegna ástandsins núna um Covid-19 og sykursýki hjá fullorðnum.
Upplýsingarnar verða tímabundið undir "fréttir" en munu fá sinn fasta stað þegar breytingum á heimasíðu LÍ verður lokið, en eins og lesendur síðunnar hafa tekið eftir hefur heimasíðan tekið miklum breytingum að undanförnu en þeim er ekki að fullu lokið.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga