Verkfallsaðgerðir lækna samþykktar með afgerandi meirihluta


Nú kl. 16 lauk atkvæðagreiðslu um tillögu stjórnar LÍ um verkfallsaðgerðir lækna í nóvember og desember 2024 og janúar 2025. Á kjörskrá voru 1246. Atkvæði greiddu 1032 eða 82,83% þeirra sem máttu greiða atkvæði.

Já sögðu 956 eða 92,64%
Nei sögðu 52 eða 5,04%
Auðu skiluðu 24 eða 2,32%

Verkfallsaðgerðir lækna voru því samþykktar með afgerandi meirihluta.

Ríkissáttasemjara og viðsemjandanum, samninganefnd ríkisins verður tilkynnt á morgun 1. nóvember, um að verkföll með þeim hætti sem samþykkt voru hefjist 18. nóvember nk., enda hafi samningar milli aðila ekki tekist fyrir þann tíma.

Verkfallsaðgerðirnar verða í nokkrum lotum: Fyrsta lotan er 18. - 21. nóvember, næsta lota er 2. - 5. desember, sú þriðja 16. - 19. desember. Í janúar 2025 verða í hverri viku verkföll lækna á einhverri starfseiningu þeirra, eins og nánar kemur fram í meðfylgjandi lýsingu.

Stjórn og samninganefnd LÍ vona að til verkfallsaðgerða þurfi ekki að koma og að samningar náist áður en boðuð verkföll eiga að hefjast.

Verkfallsaðgerðir lækna verða sem hér segir:

Í nóvember 2024:

1.    Frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 18. nóvember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónusta Landspítala (þó ekki læknar sem starfa við svæfingar og gjörgæslu).
b.    Geðþjónusta Landspítala.
c.    Embætti landlæknis.
d.    Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
e.    Ráðgjafar- og greiningarstöð.

2.    Frá miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 19. nóvember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Sjúkrahúsið á Akureyri.
b.    Skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónusta Landspítala (eingöngu læknar sem starfa við svæfingar og gjörgæslu).

3.    Frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 20. nóvember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónusta Landspítala.
b.    Hjarta-, augn- og krabbameinsþjónusta Landspítala.

4.    Frá miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 21. nóvember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.
b.    Klínisk rannsóknar- og stoðþjónusta Landspítala.
c.    Kvenna- og barnaþjónusta Landspítala.
d.    Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
e.    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
f.    Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
g.    Heilbrigðisstofnun Austurlands.
h.    Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
i.    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. 

Í desember 2024:

5.    Frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 2. desember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) og frá miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 17. desember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.
b.    Klínisk rannsóknar- og stoðþjónusta Landspítala.
c.    Kvenna- og barnaþjónusta Landspítala.
d.    Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
e.    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
f.    Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
g.    Heilbrigðisstofnun Austurlands.
h.    Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
i.    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

6.    Frá miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 3. desember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) og frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 18. desember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónusta Landspítala (þó ekki læknar sem starfa við svæfingar og gjörgæslu).
b.    Geðþjónusta Landspítala.
c.    Embætti landlæknis.
d.    Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
e.    Ráðgjafar- og greiningarstöð.

7.    Frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 4. desember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) og frá miðnætti aðfaranótt fimmtudagins 19. desember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Sjúkrahúsið á Akureyri.
b.    Skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónusta Landspítala (eingöngu læknar sem starfa við svæfingar og gjörgæslu).

8.    Frá miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 5. desember 2024 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) og frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 16. desember 2024 (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss: 
a.    Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónusta Landspítala.
b.    Hjarta-, augn- og krabbameinsþjónusta Landspítala. 

Í janúar 2025:

9.    Frá miðnætti aðfaranótt mánudagins 6. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti þriðjudagsins 14. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti miðvikudagsins 22. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti fimmtudagsins 30. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Sjúkrahúsið á Akureyri.
b.    Skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónusta Landspítala (eingöngu læknar sem starfa við svæfingar og gjörgæslu).

10.   Frá miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 7. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 15. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 23. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 27. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónusta Landspítala.
b.    Hjarta-, augn- og krabbameinsþjónusta Landspítala.

11.   Frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 8. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 16. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 20. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 28. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.
b.    Klínisk rannsóknar- og stoðþjónusta Landspítala.
c.    Kvenna- og barnaþjónusta Landspítala.
d.    Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
e.    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
f.    Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
g.        Heilbrigðisstofnun Austurlands
h.    Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
i.    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

12.   Frá miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 9. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 13. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 21. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur), frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 29. janúar 2025 til miðnættis sama dag (einn sólarhringur) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:
a.    Skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónusta Landspítala (þó ekki læknar sem starfa við svæfingar og gjörgæslu).
b.    Geðþjónusta Landspítala.
c.    Embætti landlæknis.
d.    Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
e.    Ráðgjafar- og greiningarstöð.