Verkfallsaðgerðir læknar aftur samþykktar með afgerandi meirihluta

Kl. 16 í dag, 7. nóvember, lauk atkvæðagreiðslu um tillögu stjórnar LÍ um verkfallsaðgerðir lækna í nóvember og desember 2024 og frá 6. janúar fram í apríl 2025. Á kjörskrá voru 1246. Atkvæði greiddu 1061 eða 85,15%.

Já sögðu 1015 eða 95,66% Nei sögðu 35 eða 3,3% Auðu skiluðu 11 eða 1,04%

Atkvæði voru greidd á 11 vinnustöðum lækna og var fjöldi lækna sem samþykkti verkfallsboðun frá því að vera allir sem greiddu atkvæði niður í að vera 72,2% þeirra sem greiddu atkvæði. Á tveimur vinnustöðum greiddu allir atkvæði með verkfalli, á fimm vinnustöðum greiddu a.m.k. 95% atkvæði með verkfalli, á einum vinnustað greiddu 93% með verkfalli, á tveimur vinnustöðvum greiddu milli 83 og 85% atkvæði með verkfalli og á einum vinnustað greiddu 72% atkvæði með verkfalli.

Verkfallsaðgerðir lækna voru því samþykktar með afgerandi meirihluta, eða 95,66% greiddra atkvæða, eins og áður segir. Enn fleiri læknar samþykktu boðaðar verkfallsaðgerðir en í síðustu atkvæðagreiðslu sem LÍ ákvað að endurtaka vegna þeirrar afstöðu ríkisins að sú verkfallsboðun hefði verið ólögmæt.

Ríkissáttasemjara og viðsemjandanum, samninganefnd ríkisins verður tilkynnt á morgun 8. nóvember, um að verkföll með þeim hætti sem samþykkt voru hefjist 25. nóvember nk., enda hafi samningar milli aðila ekki tekist fyrir þann tíma.

Verkfallsaðgerðirnar verða vikulega og hefjast 25. nóvember nk. eins og fyrr segir. Fyrstu vikuna verða allir vinnustaðir lækna í verkfalli frá mánudegi 25. nóvember til fimmtudags 28. nóvember frá miðnætti til kl. 12 að hádegi. Næstu vikuna verða allir vinnustaðir lækna í verkfalli frá miðnætti til kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 3. desember og fimmtudaginn 5. desember. Í þriðju vikunni verða allir vinnustaðir lækna aftur í verkfalli frá mánudegi 9. desember til fimmtudags 12. desember frá miðnætti til kl. 12 á hádegi. Í fjórðu vikunni verða allir vinnustaðir lækna í verkfalli mánudag 16. desember og miðvikudag 18. desember frá miðnætti til kl. 12 á hádegi.

Hlé verður á verkfallsaðgerðum frá 20. desember til og með 5. janúar 2025.

Verkfallsaðgerðir halda áfram mánudaginn 6. janúar 2025 með nákvæmlega sama hætti, þ.e. í fjögurra vikna lotum eins og að framan greinir, alveg fram að dymbilviku.

Stjórn og samninganefnd LÍ vona að til verkfallsaðgerða þurfi ekki að koma og að samningar náist áður en boðuð verkföll eiga að hefjast.