Í því umróti sem skekur íslenskt heilbrigðiskerfi þetta sumarið með skorti á hjúkrunarfræðingum og uppsögnum ljósmæðra og undirmönnun ýmissa annarra heilbrigðistétta standa læknar vaktina enn. Læknisfræði er grunnstoð heilbrigðisþjónustunnar sem ekki má bresta þó annað hrökkvi undan álagi og upplausn skapist í heilbrigðiskerfinu. Engar reglur gilda um lágmarksmönnun lækna utan lögbundinnar neyðarmönnunar ef til verkfalls gæti komið.
Svo undarlega sem það kann að hljóma reyndist í því eina verkfalli sem læknar neyddust til að ganga í gegnum á 100 ára sögu Læknafélags Íslands mönnun heldur skána á sumum deildum helstu heilbrigðisstofnana þegar uppfyllt voru ákvæði neyðarmönnunarlista. Undirmönnun lækna og mikið álag einkennir enn starfsaðstæður lækna á sumum sviðum og huga þarf að stöðugri endurnýjun og endurmati á mönnunarþörf m.t.t. breytinga í samfélagsgerð, mannfjölda og tækniframfara.
Nýliðun lækna er þróunarverkefni sem ekki má vanrækja eða hefta með nokkru móti. Læknar hafa aldrei reynt að fría sig ábyrgð á hlutverki starfsstéttarinnar í íslensku samfélagi. Skortur er enn á læknum, hvort sem litið er til sjúkrahúsþjónustu, heilsugæslu eða sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Má þar nefna skort á heimilislæknum, taugalæknum, hjartalæknum, barnageðlæknum, gigtlæknum, öldrunarlæknum og augnlæknum.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga