Á fundi Læknafélags Íslands með velferðarnefnd Alþingis í nóvember sl. var fjallað um vinnuskipulag og álag á lækna sem sinna bráðadeild Landspítalans. Núverandi aðstæður eiga því ekki að koma þingmönnum á óvart. Greint var frá lýsingum lækna á skipulagi starfseminnar og vinnuaðstæðum. Fram kom m.a. að læknar hreyfiteymis bráðadeildar hafa ítrekað reynt að vekja athygli stjórnenda Landspítala á ástandinu, álaginu, óviðunandi starfsaðstæðum og þróun mála án viðhlítandi viðbragða æðstu stjórnenda eða framkvæmdastjórnar.
Meðal þess sem læknar gagnrýna er að mönnun sérfræðilækna í almennum lyflækningum sem sinna þessari þjónustu sé ófullnægjandi. Á haustmánuðum 2019 sinntu níu sérfræðingar í 5,8 stöðugildum á 21 rúma legudeild, auk þess dagdeild, göngudeild, sýklalyfjagjöfum og vaktþjónustu. Einn sérfræðingur getur þurft að bera ábyrgð á meðferð 40-60 bráðveikra sjúklinga. Ráðleggingar um mönnun lækna m.t.t. vinnuálags og læknisþjónustu segja að við þessar aðstæður þurfi 12 sérfræðinga í fullu starfi. Þekkt er að of margir sjúklingar á hvern lækni skapa hættu á að yfirsýn tapist og að öryggi sjúklingsins sé ekki lengur tryggt. Það virðist því miður hafa komið á daginn og varað hefur verið við yfirvofandi stórslysi. Þá var á fundinum með velferðarnefnd einnig vakin athygli á því að fram hefði komið að skipulag á hjúkrunarþjónustu væri á köflum stopult, starfsaðstaða ófullnægjandi og mönnun kandídata og sérnámslækna brigðul.
Aðstaðan á bráða- og móttökudeildum til að taka við núverandi fjölda bráðveikra sjúklinga er löngu sprungin og alls ófullnægjandi eins og fram hefur komið í lýsingum starfsfólks og sjúklinga sem þangað hafa leitað að undanförnu. Er svo komið að yfirlæknar og sérfræðilæknar telja sig ekki lengur geta borið ábyrgð á mistökum við meðferð sjúklinga sem geta orðið við þessar aðstæður. Á sama tíma hefur hjúkrunargeta sjúkrahússins verið sprengd með hvatvísum og að því er virðist stundum lítt ígrunduðum ákvörðunum um að spítalinn sinni nýjum átaks- og sérverkefnum með óljósum sparnaði fyrir samfélagið og allra síst hagkvæmni og öryggi fyrir sjúklinga þegar afleiðingarnar eru skoðaðar heildrænt og í samhengi við áhrif á aðra þjónustuþætti. Það kemur því ekki á óvart að aðildarfélög LÍ starfandi á Landspítala hafi í ályktun í byrjun ársins krafist að stjórnendur og heilbrigðisyfirvöld axli ábyrgð á þessum ákvörðunum og stefnu.
Áður hafa samtök lækna og læknaráð kallað eftir skipun Landspítalastjórnar yfir sjúkrahúsið. Nú þegar heilbrigðisráðherra leggur fram frumvarp með breytingum á Heilbrigðislögum og vill leggja niður hlutverk læknaráðs og skilgreinda faglega ábyrgð yfirlækna á læknisþjónustu sem undir þá heyrir er áríðandi að ríkisstjórnin og Alþingi í heild grípi í taumanna áður en í frekara óefni er komið í heilbrigðismálum þjóðarinnar með alvarlega skertri þjónustu við sjúklinga og álagi á starfsfólk.
Grein Reynis Arngrímssonar birtist í Féttablaðinu 14.1.2020
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga